,,Fátt er svo með öllu illt að Bendileikurinn sé ekki verri"
26.09.2007 13:27:44 / geirk

Ferdasidan

http://geirkonrad.bloggar.is/

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 21:07:25 / geirk

Ehhh.... já.

http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1205470 kv. C

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 20:55:01 / geirk

Færsla 16. Núna um daginn.

Núna um daginn var ég staddur inná bókasafni skólans og var að skoða sálfræðibækur til að finna mér einhverjar góða heimildir í þroskasálfræðirannsóknina mína. Ég finn í neðstu hillu eina áhugaverða bók um "abnormal" sálfræði og tek hana úr hillunni, þegar ég geri það sé ég glitta í gamla bók sem einhver hafði falið fyrir aftan hina bækurnar. Þessi gamla rifna bók vekur dálitla furðu hjá mér þannig að ég tek aðra bækur úr hillunni til að losa þá gömlu. Ég hef eftir smá stund í hendi mér litla, dularfulla og rykuga bók. Bókin ber þann einfalda en dularfulla titil "Um dáleiðslu".

Ég fletti bókinni og sé að hún er á íslensku. Ég skoða kaflana og rek augun í ýmis kaflaheiti eins og "sársauki og annað fleira" og "hugsvif". Ég áttaði mig þá á því að ég væri of seinn í tíma og kem mér því fljótt að afgreiðsluborðinu og byð um að fá þessa bók lánaða. Bókasafnskonan skoðar bókin og segir með furðusvip að þessi bók sé ekki skráð í kerfið. Með glotti spyr ég þá hvort ég megi bara ekki kaupa þessa illa förnu bók, því ég vissi að safnið væri að selja gamlar bækur til að rýma fyrir nýjum bókum. Eftir smá tal við aðra bókasafnskonu lætur konan mig vita að ég megi fá þessa bók á 50 kr. Ég hendi 50 kalli á borðið, gríp dularfullu bókina og hraða mér í tíma.

Ég er núna hálfnaður með þessa bók, og það hlakkar í mér...
~ Geir Konráð


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 03:34:48 / geirk

Ekki nálægt því að vera færsla (bara eitthvað "klukk" vesen)

4 störf sem ég hef unnið yfir ævina:

Ráðsmaður fyrir LWF í Ísrael og Palestínu.
Starfsmaður í Bónus Borgarnesi.
Vinnumaður í Vatnaskógi.
Leiðbeinandi í Sunnudagaskólanum í kirkjunni í Borgarnesi.

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

The Boondock saints.
The prince of Egypt.
Princess Mononoke.
The Emperor's New Groove. 

4(2) staðir sem ég hef búið á:

Höfðaholt 8, Borgarnes.
Heimavist menntaskólans á Akureyri (Lundur)

4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:

Boston Legal
The Simpsons
Futurama
The myth busters

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Vestur-evrópa.
Austur-evrópa.
Mið austurlönd.
Norður Ameríka.

4 heimasíður sem ég skoða daglega (ekki kannski daglega, en mjög oft):

mbl.is
yahoo.ca
vantru.is
google.com

4 máltíðir sem ég held upp á:

Lundahjörtu
Fiski- og humarsúpa með saffran.
Blóðmör
Dominos pizza

4 bækur sem ég les oft:

The fingerprints of the gods.
Ógnaröfl.
Veröld Soffíu.
Króka-refs saga.

4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna: 
Búdapest
Havana á Kúbu
Gardavatn á Ítalíu
Sumarbústaður fjölskyldunnar í Húsafelli.

4 manneskjur sem ég ætla að klukka:
neibb, ekki séns!


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 11:06:21 / geirk

Ekki beint alvöru færsla.

Ég skellti inn nokkrum tenglum til að gera eitthvað við þetta blessaða blogg. Einnig hef ég verið að hugsa um að kannski íhuga það að byrja einhvertíman að blogga aftur.
Sjáum til.

~Geir Konráð

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.09.2005 14:18:03 / geirk

Færsla 15. Kominn heim.

Jæja... ég er kominn heim (nokkuð heill líkamlega) eftir svakalegar ævintýrafarir um Evrópu og Ísrael/Palestínu. Ég ætla aðeins að bíða með ferðasögurnar fyrst um sinn, láta þær malla aðeins í huganum og krydda síðan vel áður en ég skelli þeim á netið.

En já, ég er kominn á Akureyri og byrjaður í skólanum. Þetta stefnir allt í frábæran vetur.

Reyndu að meta hið góða líf sem við lifum hérna á Íslandi.
~ G. Konráð.
-------------------------------------
Lag þessarar færslu er:

Hjálmar: Varúð


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.05.2005 16:28:48 / geirk

Færsla 14. Sumarið er löngu komið.

Ha???
Hvað ertu að gera, hangandi yfir tölvunni á þessum dýrðardegi? ...ég hef sett þessa síðu í sumarfrí fyrir löngu!

"Farðu út að leika þér."
 ~ GeirK
--------------------------------
Lag þessarar færslu er:
Bobby McFerrin: Don't worry be happy.

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2005 19:40:47 / geirk

Færsla 13. Gleði, gleði, gleði... gleði líf mitt er.

Góðan og blessaðan daginn, kæru bræður og systur.

Gríðarlega er ég ánægður í dag, ég bara gjörsamlega er að takast á loft. Veðrið er gott, skólinn gengur vel, allt stefnir í frábært sumar og það styttist óðum í það að Vistin verði VMA laus... hehe. Nei nei, þau eru ágæt.

En já, svo ég vil bara minna fólk á að fjölmenna á samkomu Birtingar í Reykjavík til að mótmæla ofbeldi, sem verður haldin bráðlega. Svakalega er ég stoltur af fólkinu sem stendur á bak við þetta, ég vona að þau viti það.

Það er í raun engin djúp speki, hugmyndir eða geirslegur áróður í þessari færslu. Það eina sem ég vil að fólk viti er að á þessari stundu er ég á toppi lífsins, “everything is going my way”.

“Ég vona að það sé það sama í gangi hjá þér”

-----------------------------------------

Lag þessarar færslu er bara allt með “Bee Gees”

-----------------------------------------

Kær kveðja til ykkar allra.
~ Geir Konráð


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.04.2005 10:16:28 / geirk

Færsla 12. Til Zanzibar á 80 dögum.

Sum ykkar hafið kannski heyrt áætlun mína og Guðmunds á Borg á Mýrum fyrir sumarið, en fyrir þá sem ekki hafa heyrt neitt af þessu þá ætla ég að koma með frekar grófa lýsingu á ferðaleiðinni.

Planið er að ferðast um 8000 km á 80 dögum. Flogið verður til Frankfurt-Hahn frá Keflavík snemma í júní, eftir þetta flug verður ekkert flogið fyrr en við komum til Dar es Salaam í lok ágúst. Í Frankfurt festum við kaup á Inter-rail korti sem gildi í 21 dag, með því korti ætlum við að koma okkur með lestum til enda Tyrklands. Á þessu ferðalagi um Evrópu munum við reyna að komast í tæri við innfædda og reyna að festa á filmu allt það sem verður á vegi okkar. Við munum einblína á mannlega hegðun og menningu hvers lands. Það má í raun segja að þessi ferð sé að mörgu leiti gerð til rannsóknar á náunganum, og til að sýna fram á alla þá illsku sem hann er fær um, og um leið alla þá manngæsku. Ekki má samt gleyma að við búumst við að staldra við í helstu borgum þessarra austur-Evrópu þjóða og reyna skoða öll þau helstu mannvirki sem þar eru. Frá Tyrklandi munum við koma okkur til Sýrlands, og frá Sýrlandi til Jórdaníu. Þar sem Jórdanía og Sýrland eru frekar góð lönd miðað við nágrannaríkin, reiknum við með smá stoppi þar og virða fyrir okkur elstu minjar manna frá þessum stað þar sem er einmitt upphaf siðmenningar (að mati rétttrúnaðar vísindamanna). Frá Jórdaníu verður síðan haldið yfir Sínaí-skagan til Egyptalands. Þá fyrst komum við til Afríku og reiknum með að vera þá búnir með um mánuð af ferðalagainu.

Við tökum lest frá Caíró til Aswan sem er nálægt landamærum Súdans, frá Aswan er ferja til Wadi Halfa sem er í Súdan við landamæri Egyptalands. Í Súdan (sem er eitt mesta hörmungarríki veraldar) munum við gera það sem í okkar valdi stendur til þess að láta á einhvern hátt gott af okkur leiða. Frá Wadi Halfa förum við með lest til Khartoum sem er höfuðborgin í Súdan, og frá Khartoum liggur leiðin beint eða óbeint til Addis Abeba í Eþíópíu. Það þarf að hafa í huga að lestarferðir um þessi svæði eru óskýrar samkvæmt núverandi upplýsiningum en það eru alltaf rútur sem að fara milli stærstu borganna og sagt er að allir helstu vegir þarna eru í góðu ástandi. Frá Eþíópíu tökum við stefnuna á Nairobi í Kenýa og frá Nairobí verður haldið til Tansaníu.

Í þessum þremur löndum munum við nota mesta tíma ferðarinnar í það að hafa upp á íslensku hjálpar- og kristniboðsfólki og kynna okkur þeirra vinnu í þessum löndum, og auðvita rétta fram hjálparhönd þar sem hennar er þörf.

Ef öll áætlunin hér að ofan mun ganga upp gerum við ráð að vera komnir að Dar es Salaam, höfuðborgar Tansaníu, um 20. ágúst og þaðan munum við sigla með seglbát til eyjarinnar Zanzibar. Þar munum við hvíla lúin bein á ströndum eyjarinnar áður en við höldum af stað heim. Við höfum reiknað með auðveldri heimferð eða einfaldlega taka flug heim frá Dar es Salaam í Tansaníu til Dubai í Arabísku furstadæmunum og þaðan til London. Frá London verður svo haldið heim á langþráðan klakann.

Til þess að gera sem mest úr þessari ferð og einnig til að við höfum fræðilega séð efni á henni er ætlunin að festa á filmu þetta ótrúlega ferðalag sem að við höfum ráðgert. Við erum að fara í samningaviðræður við sjónvarpsmiðla hér á landi um vinnslu og sýningar á efninu ef allt gengur upp. Fjármagn til að styðja við bakið á okkur í þessari ferð kemur bæði frá styrkjum allskonar sjóða og sölu á auglýsingum fyrirtækja sem fléttaðar eru inní myndefnið þegar og ef það verður sýnt.

Þetta er auðvitað, eins og ég sagði fyrr, bara ferðaáætlunin í grófum dráttum. Ef telja ætti upp allt sem við áætlum að fara og gera yrði þetta mun lengri ritning og væntanlega ekki innan áætlaðra ramma ritverksins. En tilgangur þessarar ferðar er í rauninni enginn annar en bara að kynna sér lífið og tilveruna sem að við eigum. Við ætlum okkur að njóta lífsins, við erum ungir menn og höfum gaman af að skemmta okkur en aðaltilgangurinn er þó að sýna fólki í raun hvað hægt er að gera við líf sitt.

Það er nefnilega svo margt sem hægt er að gera, ef manni bara dettur það í hug.

~Geir Konráð

------------------------------------

Lag færslunar er "Deanu Maija" (Þetta er Samíst rokk. Samar er þjóðflokkur sem býr í norður Skandinavíu)

http://www.intrigue.no/Music/Heavyjoik/29,Deanu_Maija.mp3


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.04.2005 00:38:45 / geirk

Færsla 11. Kannski líður H. bara illa.

Ég finn soldið til með greyið stráknum. Ég hef lengi verið pirraður á honum og gagnrýnt hann og deilt skoðunum mínum um hann við alla. En þó aldrei bara rætt við drenginn til fulls um það sem pirrar mig. Ég ætti að skammast mín fyrir það sem ég hef gert. Ég hef rústað orðstýr þessa drengs meðal félaga minna og fjölskyldu með þessum skoðunum mínum. 

Hann hefur sína galla, það er ekki hægt að neita þvi, en ég hef samt aldrei gefið honum tækifæri á að útskýra mál sitt. Hví hann geri þetta en ekki hitt.

Núna þegar ég ræddi við hann um hreinlætið hans, þá leið honum illa. Í fyrstu hafði ég gaman af því, því ég hef bælt gríðarmikla reiði í hans garð í langan tíma, en svo fór mér að líða illa.

Drengurinn á bágt og þarf bara hjálp. Þetta hvarflaði ekki að mér, ég setti mig aldrei í hans spor. 

Ég hélt aldrei að ég gæti verið svona blindur af reiði, að í staðinn fyrir að hjálpa náunganum hataði ég hann og óskaði honum alls ills.

Þetta mun ekki koma aftur fyrir.
Blindur hef ég verið, en nú hef ég sjón. 

“Ertu viss að þú sért með augun opin fyrir náunganum?”
~ Geir K


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.03.2005 19:36:42 / geirk

Færsla 10. Ég fann fyrir klóm dauðans

Lífið er ekki eilíft hjá neinum manni.”  

Þessi tilfinning skall óþægilega fast mér í höfuð þegar ég mætti brjálæðing á brú í Borgarfirði núna um páskanna.

Ég var í rólegheitunum á littla Pólóinum hans Gumma Prestleys á leiðinni heim í nesið eftir að hafa skuttlað nokkrum jafnöldrum mínum á ball í Logalandi. Í sakleysi mínu keyrði ég að einbreiðri brú rétt hjá Hvanneyri og var kominn inn á brúnna, þegar allt í einu, kom snarbrjálaður ökumáður jeppa á fleygiferð í morðhug og brunar inná brúna á móti mér. Ég var snar í hugsun og gjörðum og setti bílinn í bakkgír og kom mér út í vegkannt við brúarendan, þar sat ég blinur af háuljósum jeppans þegar hann brunar á alveg kolólöglegum hraða yfir brúnna og framhjá mér, út í myrkrið. 

Í sjokki fór ég að hugsa að ég var bara næstum dauður! Hugsanir flugu í gegnum um höfuðið, en það var eitt sem stóð uppúr.

Ef ég hefði dáið á þessari stundu, væri ég þá ánægður með það sem ég hef gert í lífinu?” 

 

Ég hélt akstri mínum áfram og velti þessu fyrir mér.

Ég hef gert margt á minni ævi hingað til. Ég hef ferðast, lent í ævintýrum, gert alveg hina ótrúlegustu hluti og kynnst alveg ótrúlega mörgu gæða fólki. En samt, það er svo margt sem mig langar til að gera, og þetta atvik var svona spark í rassinn um að ég á ekki að sóa þessum dýrmæta tíma í hluti sem gefa af sér lítið sem ekki neitt.

Ég fór að hugsa að ef ég hefði bara hætt námi eftir grunnskóla farið að vinna í Bónus og verið í blessaða Borgarnesi í um þrjú ár, bara fullur og á rúntinum, og svo dáið þarna á brúnni við Hvanneyri.

Svakaleg sóun á lífinu hefði það verið, en kannski vilja sumir lifa þessu lífi sem ég var að lýsa, en það er ekki fyrir mig.

Þess vegna hef ég fengið þessa vakningu, það að lifa lífinu og láta draumana rætast. Ég ætla að brjóta af mér keðjur samfélagsins sem segja mér hvað er rétt og hvað sé rangt.  

Ég er ekki að tala um að koma af stað einhverri svakalegri uppreisn gegn ríkjandi gildum og viðmiðum fjöldans, heldur frekara fara að svona “thinking outside of the box”.

Kannski ættir þú að gera það líka?
~ GeirK

------------------------------------------------

Lag þessa pistils er:

Tomaso Albinoni: Adagio for organ violin & strings in G minor

------------------------------------------------


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.03.2005 17:46:25 / geirk

Færsla 9. Er lýðræði góð hugmynd?

ATH!
Eftirfarandi færsla inniheldur, það sem sumt fólk myndi segja að væru, fordómar í garð hálfvita, fávita og kinda. Ef þú telur þig vera hálfvita, fávita eða kind er þessi lesning ekki ætluð þér og þú ættir að hætta að lesa eftir "Takk fyrir".

Takk fyrir

--------------------------------------------

Hví eigum við að láta meirihlutan ráða, þegar það eru svona margir hálfvitar í heiminum?” 

Það hefur nú þegar sést í BNA að svona stjórnarfyrirkomulag (Lýðræði) getur komið ótrúlegasta fólki í valdastöðu. Bush karlinn, vinur okkar allra, er gott dæmi um þegar heimska hjörðin fékk að velja sér hirði.

Hví eiga kindurnar að ráða hvað sé þeim fyrir bestu? 

Þetta er það sem ég hef áhyggjur af. Ég tel þó að lýðræði sé gríðarlega sniðugt fyrir skynsaman almenning. En ég hef séð svo marga fávita kjósa fávita á minni stuttu lífsleið að hef ég farið að efast um stjórnarfyrirkomulagið lýðræði.

En hverskonar fyrirkomulag á stjórn á að nota? 

Of mikið vald spillir fólki, þetta hefur sagan sýnt. Þannig að lausnin sem þú ert að velta fyrir þér virkar ekki. Ég get ekki orðið “The supreme overlord of Earth” því þrátt fyrr göfuga sýn um hinn fullkomna heim tel ég að svona vald spilli þínum ástsæla Geir.

Hinsvegar tel ég að ég sé með lausn á þessum vanda. Smá breytingu sem kemur valdinu til hins hugsandi minnihluta.

Hugmynd mín er sú að hafa kostningarétt ekki sjálfsagðan hlut sem hver og einn fær við ákveðinn aldur.  

Nei, frekar þarf viðkomandi að standast próf til að öðlast rétt til að kjósa.

Þetta mundi sía frá hálfvitana sem kjósa eftir hvaða flokkur var mest auglýstur eða hélt stærsta partý’ið og gaf þeim mest af fríu áfengi.  

Best væri þó að gera menntakerfið eins gott og við mögulega getum til að mennta komandi kynslóðir upp í að verða skynsamir hugsandi einstaklingar sem viti vel hvað sé þeim fyrir bestu.

Því börn okkar skulu vera menn ekki kindur
~ GeirK


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.03.2005 14:55:04 / geirk

Færsla 8. Dæmum við bókina eftir kápunni?

Hvernig eru fyrstu kynni hjá okkur?

Þegar við sjáum persónu í fyrsta skiptið þá er það okkur eðlilegt að flokka persónuna. Við gerum þetta jafnvel ómeðvitað, og áður en við áttum okkur á því erum við búin að dæma persónuna eftir útliti og hegðun. Þá erum við búin að setja hana í flokk sem kemur kannski í veg fyrir nánari kynni því við viljum ekki umgangst "svona fólk".
Dæmi um flokka eru: Nördar, tíkur, asnar, VMA'ingar, snobb, skagamenn og svo framvegis.

En opna þarf skelina ef finna skal perlu.

Það býr meira í manninum en hegðun og útlit sýnir, og allir hafa sýna slæmu daga, jafnvel vikur, í útliti og hegðun þegar heimurinn virðist gera allt sem hann getur til að lemja mann niður í forina.

Maður sem á sinn slæma dag getur verið með ljótustu skel í manna minnum en stærstu og fallegustu perlu sem býr þar fyrir innan. Ef við dæmum þennan mann, og bara alla menn, við fyrstu kynni og látum fordóma og heimsku ráða dómnum í fljótfærni, missum við af öllum þeim perlum sem leynast í mönnum þessa heims.

“Gefum okkur tíma til að finna það góða í hverjum manni.”

~GeirK


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2005 23:36:15 / geirk

Færsla 7. Svona smá útskýring.

Ég fékk fyrirspurn um hví ég tel niður í heimsendi á síðunni. Það er víst best að ég útskýri það nánar.

Samkvæmt mínum bestu heimildum um trúarbragð og menningu Maya í Suður-Ameríku er sagt að heimurinn muni farast árið 2012. Þetta voru þeir víst búnir að reikna út frá stjörnunum. 

Ég efast stórlega um sanngildi þessa reikninga, en ég hef þetta á síðunni bara til að minna fólk á að lífið er stutt og hver dagur gæti orðið sá síðasti.

"Þannig að njótið lífsins með björtum huga."

~GeirK


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2005 19:10:58 / geirk

Færsla 6. Er til annar Geir?

Dagurinn í dag er ágætisdagur og ég er bara í góðu skapi.
Ég er búinn að reyna að breyta hugsunarhætti mínum í takt við þær yfirlýsingar sem ég hef sett fram hér á þessari síðu.

Ég hef þó með allri minni bjartsýni og góðum hugsunarhætti ekki tekist að sætta mig við H. en ég hef þó áætlanir um að húsvenja H. eða finna mér annan herbergisfélaga.
------------------------------

Til að leiða hugann frá blessaða H. fór ég að spá í geiminn.

Ef heimurinn er óendalega stór þá er óendalega langt í burtu annar heimur að skapast (Big bang) á hverri sekúndu.
~Geir

Líklega hef ég rangt fyrir mér eða að fólk hefur áttað sig á þessu fyrir löngu síðan, mér finnst bara svo gaman að leika mér að þessu. Eins og ef þetta er rétt, þá get ég sagt.

Fyrst að heimurinn er óendilega stór þá er óendanlega langt í burtu annar “Geir” að gera það nákvæmlega sama og ég” ekki satt?

---------------------------------
Lag þessa pistils er.
Albinoni: Adagio
----------------------------------------

Það er gama að pæla í hlutunum.
~GeirK


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2